Jæja... er búin að vinna á starbucks, var seinasta helgin og mun
ekki fara aftur að vinna þar..... og núna á fimmtudaginn byrja ég
hjá HM... get ekki beðið... fer kl. 4 á fimmtudaginn og síðan veit
ég ekki alveg hvenær ég byrja alveg á fullu... vona bara sem
fyrst

Litla stelpan hennar Ingibjargar heitir Sara Sif.. ekkert
smá fallegt nafn og fer henni ekkert smá vel

Kom mér ekkert smá á
óvart... átti ekki von á þessu nafni en ég vissi í raun ekki hverju
ég átti von á...... kom mér skemmtilega á óvart... og ég var ekkert
smá ánægð með nafnið

fer henni vel

er svo spennt að koma heim
og hitta hana og hitta alla á íslandi.. sakna allra svo mikið

Og
í dag eru bara 10 vikur þangað til mamma kemur og síðan 11 vikur
þangað til ég kem heim

get svo ekki beðið

Mo er núna bara að
njóta lífsins... byrjar ekki fyrr en 3.september... held að hann
geti ekki beðið

við ætlum að skoða England þegar ég er í fríi og
heimsækja systur hans mikið í sumar

ætlum að gera alveg fullt af
hlutum í sumar... á morgun erum við að fara til London.. ætlum að
kíkja í dýragarðinn og ég ætla að fara að kaupa íslenskt skyr og
ost

sá á heimasíðunni hjá íslendingafélaginu í London að það er
þessi búð að selja íslenskt skyr og ost... bara verð að fara að
kaupa

vona að allir séu að hafa það gott... mamma sagði mér að
það væri bara mjög gott veður á íslandi... hérna er ekkert spes..
og á víst ekkert að verða betra

það er allt í lagi á meðan það er
ekki brjáluð rigning... vona bara að það verði aðeins betra seinna
í sumar og haldist síðan þangað til mamma kemur

Lofa að skrifa
fljótlega... heyrumst!!!!